Uppbótartíminn - Landsliðið, stutt í Bestu og hvert...
Uppbótartíminn, hlaðvarp um kvennaboltann á Íslandi, heilsar á mánudegi.Íslenska landsliðið byrjaði undankeppnina fyrir HM á því að mæta tveimur sterkustu þjóðum Evrópu og það gekk heldur brösulega. Það er einn og hálfur mánuður í Bestu deildina og nóg til að ræða um í tengslum við hana. Svo er spurning hvort Sara Björk Gunnarsdóttir, ein besta fótboltakona í sögu Íslands, sé á heimleið. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur fóru yfir allt það helsta.
is